Þessi persónuverndarstefna stjórnar því hvernig FT Import ehf. safnar, notar, viðheldur og birtir upplýsingar sem safnað er frá notendum á vefsíðu www.fjoltak.is (hér eftir kallað „Vefsíðan“). Þessi persónuverndarstefna gildir um vefsíðuna ásamt öllum vörum og þjónustu sem vefsíðan býður upp á.
FT Import ehf. er skuldbundið að verja friðhelgi gesta á vefsíðunni og hafa notendur rétt á því að skoða vefsíðu okkar án þess að gefa upplýsingar um sig. Friðhelgi notenda á einnig við þó viðkomandi þurfi að gefa upp persónulegar upplýsingar, eins og t.d. við afgreiðslu pöntunar.
Ef notandi samþykkir ekki þessa skilmála ætti notandinn að hætta allri vöfrun og skoðun á vefsíðunni, vörum eða þjónustu.
FT Import ehf. er eini eigandi vefsíðunnar og ber þar af leiðandi fulla ábyrgð á því sem gerist inná og í tengslum við vefsíðuna. Verði vefsíðan hökkuð og skemmdir unnar á henni eða persónuupplýsingum stolið mun FT Import ehf. fyrirvaralaust slökkva á síðunni til þess að koma í veg fyrir meiri skaða fyrir viðskiptavini vefverslunarinnar. FT Import ehf. mun svo að sjálfsögðu tilkynna slíkt atvik til lögreglu.
Upplýsingar um persónuskilríki
Vefsíðan kann að safna persónuupplýsingum frá notendum á margvíslegan hátt í tengslum við starfsemi, þjónustu, eiginleika eða úrræði sem aðgengileg eru á vefsíðunni. Notendur geta heimsótt vefsíðuna á nafnlausan hátt. Persónuupplýsingum verður einungis safnað ef notendur samþykkja söfnun þeirra. Notendur geta alltaf neitað að veita persónuupplýsingar, nema þegar þeirra er þörf til þess að uppfylla þá þjónustu sem óskað er eftir.
Megin tilgangur með söfnun persónuupplýsinga frá notendum er til að koma vörum til kaupanda hratt og örugglega.
Ópersónugreinanlegar upplýsingar
Vefsíðan getur safnað ópersónugreinanlegum upplýsingum um notendur hvenær sem þeir hafa samskipti við vefsíðuna. Ópersónugreinanlegar upplýsingar geta verið nafn vafrans, gerð tölvunnar, tæknilegar upplýsingar um notendur sem og tengingar við vefinn okkar, svo sem stýrikerfi, þá internetþjónustuaðila sem notaðar eru og aðrar svipaðar upplýsingar.
Vafrakökur
Vefsíðan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda og safna upplýsingum um notkun hennar. Notendur geta stillt vafrann sinn þannig að hann hafni vafrakökum eða láti vita þegar þær eru notaðar. Notendum ber að hafa í huga að ef slökkt er á vafrakökum gætu sumir hlutar vefsíðunnar ekki virkað sem skyldi.
Hvernig við verndum upplýsingar þínar
Vefsíðan gerir viðeigandi ráðstafanir til að vernda persónuupplýsingar notenda. Vefsíðan notar öruggar aðferðir við söfnun, geymslu og vinnslu gagna til að koma í veg fyrir óheimilan aðgang, breytingar, birtingu eða eyðingu upplýsinga. Þetta á meðal annars við um persónuupplýsingar, innskráningarupplýsingar og önnur gögn sem eru geymd á vefsíðunni.
Að deila persónulegum upplýsingum þínum
Við seljum, leigjum eða afhendum ekki persónuupplýsingar notenda til annarra. Við gætum þó deilt samantektum um notkun vefsíðunnar, svo sem almennum tölfræðilegum upplýsingum sem ekki er hægt að rekja til einstaklinga, með samstarfsaðilum okkar. Slíkar upplýsingar innihalda ekki persónugreinanleg gögn og eru aðeins notaðar í þeim tilgangi sem lýst er í þessari persónuverndarstefnu.
Breytingar á persónuverndarstefnu
Við kunnum að uppfæra þessa persónuverndarstefnu þegar þörf krefur, til dæmis vegna breytinga á þjónustu okkar eða gildandi lögum og reglum. Þegar breytingar eru gerðar verður dagsetning síðustu uppfærslu birt neðst á þessari síðu. Við hvetjum notendur til þess að skoða stefnuna reglulega til þess að þeir séu upplýstir um hvernig við vinnum með og verndum persónuupplýsingar.
Samþykki
Með því að nota vefsíðuna staðfestir þú að hafa kynnt þér þessa persónuverndarstefnu. Ef þú heldur áfram að nota vefsíðuna eftir að breytingar á stefnunni hafa verið birtar telst það staðfesting á því að þú hafir kynnt þér þær. Ef breytingarnar fela í sér vinnslu persónuupplýsinga sem samkvæmt lögum krefst samþykkis, verður slíks samþykkis aflað sérstaklega áður en vinnslan hefst.
Síðast uppfært þann 23 júlí 2026.
