Almennt
Fjoltak.is, hér eftir kallað “seljandi”, áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga, og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Þetta á einnig við ef um villur í reiknireglum vefverslunnar eiga sér stað.
Afhending vöru
Öllum pöntunum verður dreift með Dropp. Reynt er eftir fremsta megni að afgreiða öll kaup næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun starfsmaður hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Dropp um afhendingu vöru frá þeim. Skilmálar Dropp eru aðgengilegir á vefsíðu þeirra. Seljandi ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi þeirra. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá seljanda og þar til hún berst viðtakanda er tjónið á ábyrgð flutningsaðila.
Skilafrestur
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má innsigli ekki hafa verið rofið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með þegar vöru er skilað.
Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan kostnað sem gæti komið upp við sendingu
Netverð
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.
Skattar og gjöld
Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.
Sendingarkostnaður
Sendingarkostnaður er reiknaður við lok pöntunar.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Notkun á persónuupplýsingum
Við kunnum að nota persónuupplýsingar, svo sem upplýsingar um kaup, til að senda þér upplýsingar eða tilboð sem tengjast þjónustu okkar. Slíkar upplýsingar eru aðeins notaðar í þeim tilgangi að bæta þjónustu og samskipti við þig og eru ekki afhentar þriðja aðila í markaðsskyni.
Ef þú hefur skráð þig á póstlista okkar geturðu hvenær sem er afskráð þig og hætt að fá markaðssamskipti frá okkur.
Nánari upplýsingar um hvernig við söfnum, notum og verndum persónuupplýsingar má finna í persónuverndarstefnu okkar.
Varnarþing
Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans, skal það rekið fyrir íslenskum dómstólum.
Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða þegar móttaka vöru á sér stað.
Síðast uppfært þann 23 júlí 2026.
