LUMONITE Pixel V2 er nett og létt höfuðljós sem hentar einstaklega vel fyrir daglega notkun, vinnu og útivist. Þrátt fyrir stærðina skilar ljósið allt að 250 lúmenum og allt að 80 metra drægni.
Pixel V2 er hannað með áherslu á þægindi og einfaldleika. Ljósið vegur aðeins 62 grömm með innbyggðri rafhlöðu og því er þægilegt að nota það í lengri tíma. Breiður og jafn ljósgeislinn lýsir bæði nærsvæðið og fram fyrir notandann án óþægilegra skugga eða skarpra ljósbletta.
Ljósið er búið nokkrum styrkleikastillingum svo auðvelt er að stilla birtuna eftir aðstæðum. Innbyggð endurhlaðanleg rafhlaða og segultengd hleðsla gera notkunina einfalda og USB-C tenging gerir auðvelt að hlaða ljósið nánast hvar sem er.
Pixel V2 er með IPX8 vatnsvörn og er því tilbúið fyrir íslenskar aðstæður, hvort sem það er notað við vinnu, útivist eða almenna notkun.
Helstu eiginleikar
- Allt að 250 lm ljósstyrkur
- Allt að 80 metra drægni
- Létt – aðeins 62 g með rafhlöðu
- Breiður og jafn ljósgeisli
- 5000K litahitastig
- Nokkrar styrkleikastillingar
- Endurhlaðanleg innbyggð rafhlaða
- Segultengd hleðsla með USB-C
- IPX8 vatnsvörn
LUMONITE Pixel V2 er góður kostur fyrir þá sem vilja nett, létt og áreiðanlegt höfuðljós sem auðvelt er að hafa með sér og grípa í þegar á þarf að halda.











