Purelux Panther 9 Long Range
Purelux Panther 9 Long Range er sérútgáfa af Panther 9 sem er hönnuð með eitt markmið í huga: eins mikla drægni og mögulegt er.
Kastarinn er án afltakmarkana og skilar mældum 18.210 lúmenum. Ljósgeislinn nær allt að 1.625 metra við 1 lux, sem gerir Panther 9 Long Range sérstaklega hentugan fyrir utanvegaakstur, vinnuvélar og aðstæður þar sem mikil langdræg lýsing skiptir mestu máli.
Ólíkt hefðbundnum Panther 9 er ljósgeislinn mun þrengri og meira spot-miðaður. Sterkur miðgeisli lýsir langt fram á meðan dreifðara ljós í kringum hann gefur einnig góða lýsingu á nærsvæði og vegköntum.
Kastarinn er með 5000K litahitastig, sem gefur hlutlaust og skýrt ljós, ásamt hvíttu eða appelsínugulu stöðuljósi. Dökk optík og sérstakt Panther-útlit gefa kastaranum áberandi og nútímalegt útlit.
Með 9–36V rekstrarspennu hentar hann bæði fyrir 12V og 24V kerfi. IP69K vörn, DTP-2 tengi og sterkur festifótur gera hann vel búinn fyrir krefjandi notkun.
Helstu eiginleikar
- 18.210 lm mældur ljósstyrkur
- 1.625 m drægni @ 1 lux
- 240 W uppgefið afl
- Mælt afl 230 W
- Mjög langdrægur spot-geisli
- 5000K litahitastig
- Hvítt eða appelsínugult stöðuljós
- 9–36V DC
- DTP-2 tengi
- IP69K vörn
- CE, RoHS og ECE R10
- Ekki E-samþykktur til almennrar vegumferðar
Tæknilegar upplýsingar
Ljósstyrkur: 18.210 lm
Drægni: 1.625 m @ 1 lux / 3.250 m @ 0,25 lux
Uppgefið afl: 240 W
Mælt afl: 230 W
Straumnotkun: 19,16 A @ 12V / 9,58 A @ 24V
Rekstrarspenna: 9–36V DC
Litahitastig: 5000K uppgefið / 5131K mælt
Stærð: 225 × 200 × 77 mm
Hæð með festifæti: 214 mm
Þyngd: 2,06 kg
Kapall: um 1 m
Tengi: DTP-2
Vörn: IP69K
Samþykktir: CE, RoHS, ECE R10
Innihald
- Purelux Panther 9 Long Range kastari
- Festifótur
- Rafmagnskapall með DTP-2 tengi
- Reyklitað rispu-/hlífðarplast
- Tenginga- og uppsetningarleiðbeiningar

















