LUMONITE Releasy V2 er einföld og sterk hraðfesting sem gerir kleift að festa LUMONITE ljós á vinnuhjálm. Ljósið smellur auðveldlega í festinguna og hægt er að taka það úr henni á örfáum sekúndum þegar nota á ljósið sem höfuðljós eða handljós.
Festingin er skrúfuð á skyggni hjálmsins með meðfylgjandi festingum og passar á flesta vinnuhjálma með skyggni. Sterk málmfesting heldur ljósinu tryggilega á sínum stað, jafnvel við krefjandi vinnuaðstæður.
Með fylgir einnig gúmmíhringur sem hægt er að nota til að auka stöðugleika ljóssins þegar unnið er við mikinn titring eða hreyfingu.
Festingin vegur aðeins 32 grömm, þannig að auðvelt er að skilja hana eftir á hjálminum þegar ljósið er ekki í notkun.
Helstu eiginleikar
- Releasy™ hraðfesting
- Auðvelt að smella ljósinu í og úr
- Passar á flesta vinnuhjálma með skyggni
- Aðeins 32 g
- Sterk plastbygging með málmhlutum
- Gúmmíhringur fyrir aukinn stöðugleika
- Einföld uppsetning
Ath.: Ljós fylgir ekki með og er selt sér.














