Purelux Panther Aero C540 – 54 cm boginn LED-bar

36.900 kr.

Lágbyggður og boginn 54 cm LED-bar með breiðum ljósgeisla, tveimur aflstillingum og hvítu eða appelsínugulu stöðuljósi. Panther Aero C540 skilar 8.249 lm mældum ljósstyrk og allt að 444 m drægni við 1 lux í PowerBoost® stillingu. Bogin hönnunin dreifir ljósinu sérstaklega vel til hliðanna og hentar því vel á jeppa, sendibíla og vinnuvélar.

Framboð: Á lager

Vörunúmer: 2082 Flokkur:

Purelux Panther Aero C540 er lágbyggður og aeródýnamískur LED-bar sem sameinar snyrtilegt útlit, góðan ljósstyrk og mjög breiðan ljósgeisla.

Ljósið er með PowerBoost® og vegastillingu. Í PowerBoost® skilar það mældum 8.249 lúmenum og allt að 444 metra drægni við 1 lux, en í vegastillingu er ljósstyrkurinn 2.455 lm og drægnin 247 m við 1 lux. 

Bogin hönnun Panther Aero C540 hjálpar ljósinu að dreifast sérstaklega vel til hliðanna og lýsa vegkanta, skurði og umhverfið framan við ökutækið. Ljósgeislinn er jafnframt hæðartakmarkaður og hentar því vel fyrir lága uppsetningu á framstuðara. 

Ljósið er með 5000K litahitastig, sem gefur náttúrulegt og þægilegt ljós, ásamt hvítu eða appelsínugulu stöðuljósi. Húsið er úr húðuðu áli, linsan úr höggþolnu polycarbonate og ljósið er varið samkvæmt IP69K. 

Helstu eiginleikar

  • 8.249 lm mældur ljósstyrkur
  • 444 m drægni @ 1 lux
  • PowerBoost® og Road Mode
  • Boginn og mjög breiður ljósgeisli
  • Hvítt eða appelsínugult stöðuljós
  • 5000K litahitastig
  • 9–36V
  • Reference number 25
  • Deutsch DT-2 tengi
  • IP69K
  • ECE R10, R148 og R149

Tæknilegar upplýsingar

Uppgefið afl: 108 W
Mælt afl PowerBoost®: 115 W @ 24V
Mælt afl Road Mode: 26 W @ 24V
Ljósstyrkur PowerBoost®: 8.249 lm
Ljósstyrkur Road Mode: 2.455 lm
Drægni PowerBoost®: 444 m @ 1 lux
Drægni Road Mode: 247 m @ 1 lux
Rekstrarspenna: 9–36V DC
Litahitastig: 5000K
Stærð: 542 × 42 × 62 mm
Þyngd: 1,833 kg
Kapall: 50 cm
Tengi: Deutsch DT-2
Vörn: IP69K

 

Innihald

  • Purelux Panther Aero C540
  • 2 × breiddarstillanlegar neðri festingar
  • 2 × endafestingar
  • Móttengi fyrir rafmagnskapal
  • Uppsetningar- og tengileiðbeiningar

Ath.: PowerBoost® stillingin er ekki samþykkt til notkunar í almennri vegumferð.

 

Þyngd2,5 kg
Shopping Cart
Scroll to Top