Purelux Panther Alpha 60 Spot

18.900 kr.

Nettur og öflugur kastari með langdrægum spot-geisla, 3.500 lm uppgefnum ljósstyrk og allt að 322 m drægni við 1 lux. Panther Alpha 60 Spot er með hlutlausu 5000K ljósi, rauðu eða appelsínugulu stöðuljósi og vegsamþykki samkvæmt ECE R149. Hentar vel á vinnuvélar, jeppa, snjómoksturstæki og önnur ökutæki þar sem þarf mikla drægni úr litlu ljósi.

Framboð: Á lager

- +
Vörunúmer: 2010 Flokkur:

Purelux Panther Alpha 60 Spot er fyrirferðarlítill en öflugur kastari með langdrægum og vel afmörkuðum ljósgeisla. Hann er hannaður fyrir krefjandi aðstæður og hentar vel á vinnuvélar, þung ökutæki, jeppa, snjómoksturstæki og önnur ökutæki þar sem þörf er á mikilli drægni án þess að ljósið taki mikið pláss.

Ljósið skilar 3.500 lúmenum uppgefnum ljósstyrk og mælist 3.448 lm. Drægnin er allt að 322 m við 1 lux og 644 m við 0,25 lux.

Spot-geislinn er ekki hefðbundinn mjög þröngur punktgeisli. Geislinn er mjúklega afmarkaður í hæð og dreifist meira nær ökutækinu en þrengist eftir því sem lengra er lýst. Þannig fæst bæði góð sýn nálægt ökutækinu og mikil drægni fram á við.

Panther Alpha 60 Spot er með 5000K litahitastig, sem gefur hlutlaust og skýrt ljós og hentar vel bæði við akstur og vinnu.

Ljósið er einnig með appelsínugult eða rautt stöðuljós, sterkt álhús, polycarbonate linsu og IP69K vörn. 9–36V rekstrarspenna gerir það hentugt fyrir bæði 12V og 24V kerfi.

Helstu eiginleikar

  • 3.500 lm uppgefinn ljósstyrkur
  • 3.448 lm mældur ljósstyrkur
  • 322 m drægni @ 1 lux
  • Langdrægur spot-geisli
  • 5000K litahitastig
  • Rauður eða appelsínugulur stöðuljósamöguleiki
  • ECE R149 vegsamþykki
  • 9–36V DC
  • DT-4 tengi
  • IP69K
  • Rekstrarhiti -40°C til +60°C
  • ECE R10
  • CISPR25 Class 3

Tæknilegar upplýsingar

Uppgefið afl: 60 W
Mælt afl: 40,8 W
Stöðuljós: 4,1 W
Ljósstyrkur: 3.500 lm uppgefið / 3.448 lm mælt
Drægni: 322 m @ 1 lux / 644 m @ 0,25 lux
Rekstrarspenna: 9–36V
Litahitastig: 5000K uppgefið / 5014K mælt
Tengi: DT-4
Kapall: 50 cm
Stærð: 116 × 82 × 77 mm
Hæð með festingu: 96 mm
Þyngd: 700 g
Vörn: IP69K
Samþykktir: ECE R10, R149, CISPR25 Class 3, CE, RoHS

Innihald

  • Purelux Panther Alpha 60 Spot
  • Sterkur festifótur
  • Festibolti
  • 50 cm rafmagnskapall með DT-4 tengi
  • Móttengi
  • Tenginga- og uppsetningarleiðbeiningar
Þyngd1 kg
Shopping Cart
Scroll to Top