Purelux Apex S500 – öflugur LED-bar í númeraplötufestingu
Purelux Apex S500 er snyrtileg og öflug lausn þar sem LED-bar og númeraplötufesting eru sameinuð í eina einingu. Hann kemur í stað hefðbundinnar númeraplötufestingar og gerir því kleift að setja upp öflugan kastara án þess að hafa fyrirferðarmiklar festingar framan á bílnum.
Apex S500 er með tvær aflstillingar. Í PowerBoost® stillingu skilar hann mældum 8.948 lúmenum og allt að 572 metra drægni við 1 lux. Einnig er til staðar vegastilling með lægra afli fyrir notkun þar sem vegsamþykki á við.
Ljósgeislinn er hannaður til að gefa bæði góða breidd og mikla drægni. Sterkur miðgeisli lýsir langt fram á veginn á meðan breiðari hluti geislans lýsir vegkanta og nærsvæði. Geislinn er sérstaklega lagaður að lágri uppsetningu við númeraplötuna til að draga úr óæskilegri endurspeglun frá yfirborði vegar.
Apex S500 er einnig með hvítt eða appelsínugult stöðuljós, sem gefur bílnum nútímalegt útlit. Sterkt álhús, polycarbonate linsa og IP67/IP69K vörn gera ljósið vel búið fyrir vatn, ryk, salt og krefjandi veðuraðstæður.
Með 10–32V rekstrarspennu hentar ljósið fyrir bæði 12V og 24V rafkerfi.
Helstu eiginleikar
- 8.948 lm mældur ljósstyrkur
- Allt að 572 m drægni @ 1 lux
- PowerBoost® og vegastilling
- Breiður samsettur ljósgeisli
- Hvítt eða appelsínugult stöðuljós
- Kemur í stað númeraplötufestingar
- Stillanleg hallastaða eftir uppsetningu
- 10–32V
- DT-2 tengi
- IP67 / IP69K vörn
- ECE R10, R148 og R149
Tæknilegar upplýsingar
Mældur ljósstyrkur: 8.948 lm PowerBoost® / 5.740 lm Road Mode
Drægni: 572 m @ 1 lux PowerBoost® / 495 m @ 1 lux Road Mode
Uppgefið afl samkvæmt tæknitöflu: 140 W
Mælt afl: 132,5 W PowerBoost® / 96,8 W Road Mode
Rekstrarspenna: 10–32V
Reference number: 2 × 20
Litahitastig: 5500K uppgefið / 5386K mælt
Stærð: 532 × 182 × 60 mm
Þyngd: 1,7 kg
Kapall: 1 m
Tengi: DT-2
Vörn: IP67 / IP69K
Samþykktir: CE, RoHS, ECE R10, R148, R149
Innihald
- Purelux Apex S500 LED-bar
- 1 m rafmagnskapall með DT-2 tengi
- Festiskrúfur
- Númeraplötu-adapterar
- Uppsetningar- og tengileiðbeiningar
Ath.: PowerBoost® stillingin er ekki samþykkt til notkunar í almennri vegumferð.












