Purelux Panther S540 EasyConnect – öflugur LED-bar með einfaldri CAN-bus tengingu
Purelux Panther S540 EasyConnect er útgáfa af Panther S540 sem er sérstaklega hönnuð fyrir ökutæki með CAN-bus stýrðum ljósum.
EasyConnect kerfið einfaldar uppsetninguna með innbyggðu snjallrelei í ljósinu og meðfylgjandi XBB Dongle. Ljósið þarf í grunninn að tengja við plús og mínus á rafgeymi, en háuljósamerkið er lesið í gegnum OBD-II tengi bílsins og sent þráðlaust til ljóssins.
Í fullri PowerBoost® stillingu skilar ljósið mældum 16.492 lúmenum og allt að 764 metra drægni við 1 lux.
LED-barinn er með breiðan samsettan ljósgeisla þar sem sterkur miðgeisli gefur mikla drægni en breiðari ljósdreifing lýsir veginn og vegkantana. Geislinn er jafnframt hæðartakmarkaður til að draga úr óþarfa ljósi upp í loftið og endurkasti frá veginum.
Panther S540 EasyConnect er með tvær aflstillingar. Road Mode er ætlaður fyrir almenna vegumferð samkvæmt uppgefnum samþykktum, en PowerBoost® gefur hámarksafköst fyrir utanveganotkun og aðrar aðstæður þar sem vegsamþykki á ekki við.
Ljósið er einnig með hvítt eða appelsínugult stöðuljós, og hægt er að stjórna ljósi, aflstillingum og lit stöðuljóss með XBB appinu.
Helstu eiginleikar
- 16.492 lm mældur ljósstyrkur
- 764 m drægni @ 1 lux
- EasyConnect fyrir CAN-bus stýrð ökutæki
- Innbyggt snjallrelei
- XBB Dongle fylgir
- Tvær aflstillingar – PowerBoost® og Road Mode
- Breiður samsettur ljósgeisli
- Hvítt eða appelsínugult stöðuljós
- 5000K litahitastig
- Reference number 30
- 9–32V DC
- IP69K
- ECE R10, R148 og R149
Tæknilegar upplýsingar
Uppgefið afl: 216 W
Mælt afl PowerBoost®: 187 W @ 24V
Mælt afl Road Mode: 30 W @ 24V
Ljósstyrkur PowerBoost®: 16.492 lm
Ljósstyrkur Road Mode: 3.443 lm
Drægni PowerBoost®: 764 m @ 1 lux / 1.528 m @ 0,25 lux
Drægni Road Mode: 350 m @ 1 lux / 700 m @ 0,25 lux
Rekstrarspenna: 9–32V DC
LED: 36 × 6 W
Reference number: 30
Litahitastig: 5000K uppgefið / 5035K mælt
Stærð: 546 × 66 × 75 mm
Hæð með endafestingum: 78 mm
Hæð með neðri festingum: 81,5 mm
Þyngd: 2,79 kg
Kapall: 2,5 m
Tenging: beinir vírar, ekkert sérstakt tengi
Vörn: IP69K
Samþykktir: CE, RoHS, ECE R10, R148, R149
Innihald
- Purelux Panther S540 EasyConnect
- 2 × breiddarstillanlegar neðri festingar
- 2 × endafestingar
- Móttengi fyrir rafmagnskapal
- XBB Dongle stjórneining
- Tenginga- og uppsetningarleiðbeiningar
Ath.: PowerBoost® stillingin er ekki samþykkt til notkunar í almennri vegumferð. Road Mode er vegsamþykkt samkvæmt uppgefnum ECE R148/R149 samþykktum.
















